Austurás.is
   Allar nánari upplýsingar veita Haukur í síma 664-8000 og Ragga í síma 664-8001
13.7.2010 00:57

   
   
Dagur Orri og amma í "sveitinni" leggja í'ann...
   
Verið að þjálfa upp nýjan knapa(",  Dagur Orri start to riding..(",

Nú fyrr í sumar dreif Dagur Orri sig í reiðskólann hjá Rannveigu og Brynjari Stefánssyni á Selfossi.  Það var nú heldur betur fjör og fannst þeim stutta frekar leiðinlegt þegar námskeiðið var á enda.  Dagur var svo heppinn að fá Blesa á námskeiðinu en vill svo skemmtilega til að Daníel Karl hennar Gullu á Blesa.  Blesi reyndist hinn besti kennari og var pantað aftur á námskeið síðar í sumar og er beðið þess með óþreyju. 
Við fórum svo í sumarbústað, fjölskyldan í síðustu viku upp að Skálholti og var hnakkurinn hans Dags tekinn með því amma og afi í Laugarási voru búin að bjóða honum á hestbak hjá sér.  Þar fékk Dagur að fara á bak hinum frábæra Blæ sem er bleiksjóttur gæðingur í eigu Möggu frænku hans og hef ég nú grun um að Blær hafi borið nokkra litla pjakka í gegnum árin(",  Var amma svo frábær að hún fór í langan útreiðartúr með hann og er Dagur búinn að tala mikið um þegar þau riðu yfir "stóru brúnna" við Laugarás..það var ekkert smá sport.
Annars var þetta frábær bústaðaferð og fengum við frábæra vini og ættingja í heimsókn þessa daga(",

Allt gott er að frétta úr Austurási og allir í gír á þeim bænum eins og venjulega(",  hross að frískast og söluhross kominn á fullt.  Svo eru auðvitað okkar frábæra starfsfólk þau Óli og Agnes hress og kát eins og þau eru alltaf...held að þau fái gleðipillur í morgunmat(",  Allavega er frábært að hafa svona gott fólk í vinnu.


Prenta frétt

Til baka


Austurás hestar ehf, kt.660606-3780,Grenigrund 21, 800 Selfoss, sími/phone 664-8000/ Haukur, 664-8001/ Ragga. Email; prinsinn@toyotaselfossi.is