| |
 |
| |
Kiddi Lofts Eydís frá Austurási |
| |
Gullmoli fæddur(",.....undan Ör frá Strönd og Hnokka frá Fellskoti...
Vá...hvað ég var glöð í gærmorgun þegar ég sá að drottningin okkar hún Ör var köstuð..og það hryssu undan Hnokka...Bleikálótt stjörnótt, gullfalleg prinsessa sem fékk nafnið Eydís frá Austurási. Ör er búin að gefa okkur 5 hesta....þannig að Eydís er fyrsta hryssan undan henni. Við erum búin að vera frekar óheppin með afkvæmin en fyrsti slasaðist og einnig sá þriðji sem er fæddur 2007 og er undan Hróð...en byrjað var að temja undan Ör og Dalvari fola sem við seldum veturgamlan í vetur og kom hann mjög vel út. Ör er algjör drottning, yndisleg í geðslagi og með ótrúlega frábæra hæfileika og er hún með 8,40 fyrir þá í dómi. Ör er svo undan gæðingshryssunni Fjöður frá Sperðli sem er með 8,75 fyrir hæfileika..(", Hnokka þarf svo vart að kynna fyrir þeim sem fylgst hafa með keppni síðustu ár en hann fór vígalega undir hnakk hjá þeim Árbakkahjónum Huldu og Hinni í fyrra og erum við búin að sjá nokkuð af afkvæmum hans í sumar og eru þau áberandi falleg.
|