Austurás.is
   Allar nánari upplýsingar veita Haukur í síma 664-8000 og Ragga í síma 664-8001
ISnúmer: IS2004238907
Birna frá Búðardal

Birna er auðveld og ljúf reiðhryssa sem allir geta riðið. Hún hefur gott tölt.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2005288207
Rein frá Hrafnkelsstöðum SELD /SOLD

Rein er gullfalleg hryssa með frábært tölt og gott brokk. Hún er hágeng, þæg og skemmtileg hryssa sem bæði gæti hentað vel í keppni og sem frábært reiðhross. Hún er stór og myndarleg hryssa með gott geðslag.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2003287647
Zeta frá Jórvík

Zeta er góð klárhryssa sem er með 8,05 fyrir byggingu og 7,84 fyrir hæfileika. Hún er með 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja og fegurð í reið. Zeta er hryssa sem á inni og gæti klárlega hækkað í dóm. Hún er hágeng, viljug og þæg.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2006187440
Klerkur frá Glóru

Klerkur er stóðhestur á 4.vetur undan hinum frábæra Álf frá Selfossi og Röst frá Glóru sem var klárhryssa. Klerkur er u.þ.b 3 mánaða taminn og lítur út fyrir að hann verði klárhestur. Hann er rétt farinn að stíga í tölt og er með flottar hreyfingar og fótaburð. Hann er þægur og mjög meðfærilegur í allri umgengni og með gott geðslag. Efni í keppnishest.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2003235467
Einurð frá Vestri Leirárgörðum

Einurð er falleg alhliðahryssa með mjög gott tölt (fylfull). Hún er þæg og meðfærileg með gott geðslag. Móðir Einurðar, Erpa er Geysisdóttir frá Gerðum og er hún sýnd í kynbótadóm með 7,93 í ae. Erpa hefur gefið eina 1.verðlauna hryssu, Eflingu frá Vestri Leirárgörðum.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2001165029
Blakkur frá Hóli

Flottur klárhestur (ógeltur) með mjög góðar gangtegundir. Gæti hentað mjög vel í fjórgang og tölt. Þægur, meðfærilegur og auðveldur hestur.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2003201021
Ugla frá Fróni

Ugla er góð alhliða hryssa sem er með frábærar ættir. Hún er undan 1.verðlaunahryssunni Jódísi frá Reykjavík og Aroni frá Strandarhöfði. Ugla er hágeng, þæg og meðfærileg hryssa sem gæti hentað bæði í keppni sem og ræktun.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2001188063
Kvistur frá Hlíð 1

Mjög góður reiðhestur með góðan vilja, gott tölt og brokk og rými. Kvistur er spakur og meðfærilegur í umgengni.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2000186251
Fjalar frá Heiði

Fjalar er stór og fallegur 100% traustur hestur sem allir geta riðið. Hann er með ágætt tölt og brokk. Ágætlega rúmur og viljinn eins og hver og einn vill hafa í það skiptið.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2001287651
Fluga frá Selfossi

Fluga er myndarleg, alþæg, og töltgeng hryssa sem allir geta riðið. Tilvalin fyrir lítið vanan reiðmann en hún er alltaf hreingeng á tölti.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2004288536
Pæja frá Bergsstöðum

Pæja er efnileg 5gangs hryssa með mjög góðar gangtegundir. Hún er þæg en viljug og getur hentað jafnt sem gott reiðhross eða sem keppnishross í 5gang.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2002288214
Gjörð frá Hrafnkelsstöðum 1

Gjörð er mjög efnileg hryssa í 5gang. Hún er viljug en þæg og geta flestir riðið henni. Tölt er frábært og rúmt með góðum fótburði, brokk einnig mjög gott, lítið hefur verið átt við skeið en hún er flugvökur og auðveld. Gjörð hentar einnig mjög vel sem reiðhross fyrir þann sem vill hreingenga og þægilega hryssu. Spöng móðir hennar er 1.verðlauna Gáskadóttir og því eftirsóknarvert blóð í þessari hryssu.


Skoða betur...
ISnúmer: IS2004188208
Bláskeggur frá Hrafnkelsstöðum

Bláskeggur er stóðhestur með alveg gullfallegan lit, móvindóttur. Hann var dæmdur í vor og hlaut þá 8,20 fyrir byggingu og 7,59 fyrir hæfileika. Þetta er mjög mikið efni í flottan 5gangara sem og töltara. Hann er mjög rúmur, hágengur, með frábært geðslag og gangtegundir. Viljinn er frábær og segja má að nánast allir geti riðið honum og haft mjög gaman af enda glæsilegur hestur. Liturinn erfist vel frá honum og er hann mjög prúður og skemmtilegur í allri umgengni.


Skoða betur...


Sjá allar fréttir


Austurás hestar ehf, kt.660606-3780,Grenigrund 21, 800 Selfoss, sími/phone 664-8000/ Haukur, 664-8001/ Ragga. Email; prinsinn@toyotaselfossi.is