Við erum með nokkrar hryssur í ræktun og eigum 4 1.verðlaunahryssur. Takmarkið er auðvitað að hafa allar okkar ræktunarhryssur dæmdar en þó höldum við hryssum sem hafa reynst okkur vel í ræktun þó þær séu ekki hátt dæmdar eins og t.d Harpa og Gígja sem eru báðar búnar að gefa okkur mjög góð hross. Sumarið 2008 misstum við Hörpu þannig að yngsta undan henni er hryssa fædd 2008 undan Kvist frá Hvolsvelli.
Ræktunarmarkmið okkar er að rækta geðgóð hross með fótaburð, rými og mýkt. En smekkur manna er misjafn og við sjálf viljum misjafnar týpur af hrossum og horfa verður til þess þegar verið er að velja hesta á hryssurnar. En öll getum við sennilega verið sammála um það að hágengur, fasmikill, mjúkur töltari er eitthvað sem allir vilja eiga og gaman er þegar tekst þannig til að maður fái svoleiðis út úr ræktun sinni.
Hergill Sæsonur, Vænting frá Bæ, Ópera og Dóra Grána, haust 2008.

Haukur að dekstra Ör og Óperu.

Ópera og Ör með afkvæmin.

Sjá allar fréttir |